Gullkornin rúlla af vörum þessa undursamlega og stórskemmtilega drengs.
"Mamma, ég ætla að krumpa þig!" sagði hann í morgun þegar við
settumst niður til að spila. Aðspurður um orðavalið, sagði hann að honum þætti svo ljótt að segjast ætla að rústa einhverjum.
Kveðja, Hanna