Ég hef ekki græna fingur. Þeir eru eiginlega frekar bleikir... amk neglurnar. Þeir grænka þó vonandi með vaxandi garðyrkju- og blómaáhuga.
Þessi fallega bláa hortensía fékk að fylgja með heim úr búðinni í dag. Ég er staðráðin í að hún fái að lifa löngu og farsælu lífi, og hef beðið vinkonu mína Google að aðstoða mig - að hjálpa mér að grænka þessa klunnafingur mína :)
Kveðja, Hanna