Tuesday, August 14, 2012

Saman


Litli fallegi ljúfurinn minn var í leikskólanum frá hálf níu til að verða fimm í dag. Úff, það tók svo á mömmuhjartað að ég verð með strengi á morgun. Hann hefur aldrei verið svona lengi áður. Var þó alveg rólegur, tók eflaust ekkert eftir því að hann var lengur en venjulega.


Það er svo gaman hvað kúturinn minn er farinn að tala mikið. Hann er voðalega upptekinn af orðinu "saman". Þegar við förum í bílinn segir hann: "Eglingi sitja, mamma sitja, pabbi sitja. Saman."

Hann segir það líka ef við knúsumst öll í einu.
-Og þegar hann kemur upp í.

"Saman."

Mér finnst þetta litla orð svo fallegt.

Kveðja, Hanna

Monday, August 13, 2012

Klósettrúllukubbar


Litli herramaðurinn á heimilinu er að læra að nota klósettið. Ég hef notað ýmsar aðferðir til þess að fá hann til að sitja kyrr. Við syngjum voða mikið, lesum, spjöllum, teljum tær og fingur - og í dag bjuggum við til klósettrúllukubba :)

Grallaraspóinn minn sat ábyggilega í tíu mínútur og raðaði saman klósettrúllum. Hann hefur aldrei fengist til að sitja svona lengi áður.


Ég fór svo að hugsa hvort við gætum ekki föndrað eitthvað sniðugt úr rúllunum og fékk snilldarhugmynd (þó ég segi sjálf frá). Við föndruðum þroskaleikfang úr klósettrúllunum.



Við máluðum hverja klósettrúllu í tveimur litum. Hver litur var notaður tvisvar sinnum. Hugsunin var að það ætti að para saman litina, á sama hátt og maður parar saman punktana á domino kubbum.



Þannig gátum við eflt hreyfiþroskann (þegar hann raðaði rúllunum saman) og vitsmunaþroskann (þegar hann paraði saman samstæða liti). Í bónus fengum við stórskemmtilegt föndurverkefni sem við unnum saman.


Kveðja, Hanna


Sunday, August 12, 2012

Mesquite kjúklingasalat

Mesquite kjúklingasalat

Mér finnst svo gaman að búa til holla, góða og einfalda rétti sem tekur stutta stund að matreiða. Einn af uppáhaldsréttunum mínum er Mesquite kjúklingasalat.

Ég krydda kjúklingabringur með olíu og mesquite kryddi, pakka þeim í álpappír og elda svo í ofni á 180°c í u.þ.b. 30 mínútur.

Mesquite krydd, fæst t.d. í
Bónus og Hagkaup.
Á meðan kjúklingurinn er í ofninum sker ég niður grænmeti. Það er svolítið misjafnt hvaða grænmeti ég nota. Oftast nota ég bara það sem er til. Í salatinu á myndinni er jöklasalat, rauð paprika, rauð vínber, gúrka og púrrulaukur. Hrikalega góð blanda.

Ég leyfi kjúklingnum yfirleitt að kólna aðeins áður en ég sker hann. Ég las nefnilega einhvern tímann að þá verði hann safaríkari.  Ég veit ekki hvort það er rétt, en minn kjúklingur verður a.m.k. oftast mjög djúsí :)

Kveðja, Hanna



Friday, August 10, 2012

Til hamingju með afmælið, amma.

Amma er fræg fyrir fallegu blómin sem hún málar  :)
Elsku amma mín, Kolfinna Ketilsdóttir, á afmæli í dag. Hún er ein af yndislegustu, duglegustu og flottustu konum sem ég þekki. Mér finnst það forréttindi að þekkja hana, og að eiga hana sem fyrirmynd.

Sjálfsmynd, eftir ömmu

Síðasta árið hef ég verið svo heppin, að ég fékk að kynnast ömmu minni alveg upp á nýtt. Amma mín er sko ekki bara amma, heldur er hún orðin ein besta vinkona mín. Við getum setið tímunum saman og rætt heima og geima. Það er alveg ómetanlegt. Það er líka svo gaman að læra af ömmu. Stundum finnst mér að amma kunni allt.

Glóbristingur, mynd eftir ömmu.
Auk þess að vera skilningsrík og skemmtileg er amma mín einstakur listamaður. Ég tók nokkrar myndir af verkunum hennar ömmu þegar ég var hjá henni um daginn sem ég ætlaði að setja hér inn, en myndatakan misheppnaðist svo að fegurð listaverkanna komst ekki til skila í gegnum myndirnar. Litirnir breyttust mikið, flassið sést á mörgum mydanna, og ég er bara alls ekki með nógu góða myndavél. Ég verð samt að setja nokkrar myndir. Þessum hæfileikum þarf einfaldlega að deila.

Ég trúi því varla enn að þetta sé ekki ljósmynd.

Amma hefur ótrúlegt auga fyrir smáatriðum.
Allt myndir eftir ömmu. Tekið inni á vinnustofu.

Ótrúlega fallegt.
Eyjafjallajökull.



Tekið af vinnuborðinu hennar ömmu.

Ég ákvað að spara það að sýna þér myndir af verkum sem ég á sjálf frá ömmu. Setja frekar inn margar litlar færslur en eina stóra. Meðal þess sem þú færð að sjá seinna eru stórkostleg málverk máluð með hníf, fleiri falleg blóm og fuglar, lampi, og margt fleira.


"Ég elska þig, amma. Til hamingju með daginn."

Kveðja, Hanna Björg

Thursday, August 9, 2012

Drottinn blessi heimilið


Þessa fallegu mynd saumaði mamma fyrir mig og gaf mér í jólagjöf 2009.
Mér þykir ótrúlega vænt um hana. Hún hangir í forstofunni minni og minnir mig á elsku mömmu mína í hvert skipti sem ég fer út eða kem heim.



Að öðru, þó tengdu. Ég hef mikið velt því fyrir mér hvort, og þá að hversu miklu leyti, ég vilji veita syni mínum trúarlegt uppeldi. Mér finnst flestir foreldrar ungra barna í dag segja að þeir vilji ekki lita skoðanir barns síns, og leyfa þeim bara að velja seinna hvort þau vilji stunda trúarbrögð eða ekki. Ég ber fullkomna virðingu fyrir því og skil vel afstöðu þessarra foreldra.

Ég mun leyfa syni mínum að ráða því sjálfur hvort hann stundi trúarbrögð eða ekki en við, foreldrar hans, ákváðum að hann fengi að njóta fallegu og einlægu barnatrúarinnar sem við fengum sjálf að njóta.

Við kennum honum bænir sem fjalla um það að guð og englarnir passi hann. Við syngjum líka fallega sálma, sem hafa boðskap um þakklæti, kærleika og traust. Litli fallegi stúfurinn minn á eina ömmu sem er engill. Við biðjum hana oft að passa ljúfinn áður en hann sofnar.

Seinna munum við segja honum að ef honum líður illa, þá geti hann talað við guð og englana. Við munum líka segja honum að hann geti verið alveg viss um að guð verður alltaf góður við hann. Því sá guð sem við spjöllum við, og allir englarnir hans, vilja okkur alltaf vel - jafnvel þó að litli kúturinn minn geri stundum mistök. Þá geta guð og englarnir hjálpað honum að breyta rétt. Við völdum að kenna syni okkar bara fallega hluti sem tengjast trú. Guð og englarnir refsa aldrei. Þeir hjálpa bara.

Mér finnst ekki nauðsynlegt að hann haldi í þessa barnatrú að eilífu. Fæstir gera það. Mér finnst þetta bara svo stórkostleg leið til að kenna honum - litla fallega ljósinu mínu - að heimurinn sé fallegur, og að hvað sem gerist, verði alltaf einhver að passa hann.Við notum enga ákveðna bók eða sögur. Við tökum bara þann boðskap sem okkur finnst góður og fallegur. Þann boðskap sem við trúum að geri fallega drenginn okkar að betri einstaklingi.

Hefur þú aðra skoðun?

Kveðja, Hanna

Wednesday, August 8, 2012

Ævintýraleg hjólhýsaferð til Fjällbacka


Eins og ég sagði frá í gær, fórum við fjölskyldan í ferðalag til Fjällbacka. Við keyrðum þangað og gistum í hjólhýsi á tjaldsvæði sem heitir Åsleröd og liggur u.þ.b. 2 km fyrir utan Fjällbacka. Hjólhýsið eiga amma og afi. Þau voru svo yndisleg að lána okkur það. Ég hefði aldrei trúað því hvað það var notalegt að vera í því. Þetta var bara pínulítið heimili á hjólum :) Alveg dásamlegt.

Fjällbacka liggur á vesturströnd Svíþjóðar og er líklega frægastur fyrir það að rithöfundurinn Camilla Läckberg er uppalin þar. Bækurnar hennar gerast líka ýmist í Fjällbacka eða þar í kring. Okkur fannst líka ofsalega merkilegt að hluti af kvikmyndinni um Ronju Ræningjadóttur var tekin upp í Fjällbacka.


Á mydninni fyrir ofan erum við mæðginin að labba í Kungsklyftan, gjánni úr Ronju Ræningjadóttur. Á neðri myndinni sjást fallegu feðgarnir mínir í sömu gjá. Litli ljúfur reyndi mikið að ná í steininn.


Við ætluðum bara að vera þarna í þrjá daga með vinafólki okkar, en ég fékk óvænt starf á veitingastaðnum Richters, í eina viku, svo við ákváðum að stoppa  í alls tíu daga. Ég mæli eindregið með þessum veitingastað fyrir þá sem eiga leið um Fjällbacka. Æðislegur matur og alveg geggjað útsýni. Báðar myndirnar hér fyrir neðan voru teknar beint fyrir utan veitingastaðinn.



Þetta var eiginlega alveg fullkomið. Við fjölskyldan vöknuðum á morgnanna, fórum út og nutum daganna saman, og svo fór ég í vinnuna um fimmleytið. Það var líka alveg frábært að fá tækifæri til að æfa sænskuna :)


Okkur var í tvígang boðið í heimsókn til mágkonu afa sem á ótrúlega fallega og notalega sjóbúð, við bryggjuna í Fjällbacka. Hún á fullt af leikföngum fyrir litlu ömmustrákana sína og kúturinn minn var alsæll þegar hann fékk að leika sér að þeim.


Elsku litla drenginn minn langaði svo að sigla öllum þessu stóru bátum sem hann sá. Hann lét sér þó nægja að sigla þessum litla plastbát og horfði með aðdáunaraugum á hina :)


Kveðja, Hanna



Tuesday, August 7, 2012

Sumarfrí


Við fjölskyldan komum heim úr yndislegu fjölskylduferðalagi í gær. Við byrjuðum í Liseberg tívolíinu fyrir tæpum tveimur vikum, fórum þaðan til ömmu og afa í Laholm, fengum þar lánað hjólhýsi, keyrðum svo til Fjällbacka þar sem ég fékk óvænt tímabundið starf - svo við ákváðum að stoppa þar nokkrum dögum lengur en við höfðum ætlað. Eftir að hafa verið í Fjällbacka í níu daga keyrðum við aftur til ömmu og afa, gistum þar eina nótt og keyrðum svo heim. 

Litla ljúf fannst allt í góðu lagi þó það rigndi svolítið í ferðalaginu.

Fjörið var sko alls ekki búið þegar við komum heim, því hingað komu þrjár sextán ára skvísur sem ætla að eiga skemmtilega viku með okkur :) Þær stöllur verða hér næstu vikuna.

Á tjaldsvæðinu var stórt trampólín sem sló alveg í gegn :)

Það er sem sagt nóg að gera í sumarfríinu :) 

Kveðja, Hanna